Enski boltinn

Gylfi vill að Tottenham fái meiri liðsstyrk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gylfi sést hér lengt til hægri ásamt tveim nýjum leikmönnum Tottenham.
Gylfi sést hér lengt til hægri ásamt tveim nýjum leikmönnum Tottenham. Mynd / Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham,  telur að það sé nauðsynlegt fyrir forráðamenn félagsins að semja við einn til tvo leikmenn til viðbótar til að vera samkeppnishæfir í alla þá titla sem í boði eru fyrir liðið.

Tottenham hefur eytt um 60 milljónum punda í leikmannakaup fyrir tímabilið.

„Við höfum fengið nokkra mjög svo góða leikmenn yfir sumarið,“ sagði Gylfi við Tottenham Journal.

„Vonandi koma nokkrir til viðbótar til að styrkja hópinn. Það er langt tímabil framundan og við þurfum að hafa breiðan hóp.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×