Liverpool saknar ekki Suarez - tölurnar tala sínu máli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. september 2013 10:30 Luis Suarez. Mynd/NordicPhotos/Getty
Liverpool er eitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Englandsmeisturum Manchester United í gær en Liverpool hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína og alla með sigurmarki frá Daniel Sturridge. Mörgum þykir enn merkilegra að Liverpool sé að ná bestu byrjun félagsins í 19 ár án stjörnuleikmannsins Luis Suarez. Úrúgvæmaðurinn er enn að taka út refsingu sína fyrir að bíta Chelsea-manninn Branislav Ivanović en Suarez fékk tíu leikja bann. Luis Suarez fór á kostum með Liverpool á síðasta tímabili og var langmarkahæsti leikmaður liðsins. Það höfðu því margir stuðningsmenn Liverpool áhyggjur af gengi liðsins þegar hann fékk sitt fyrsta leikbann á síðustu leiktíð - fyrir sitt fimmta gula spjald í desember. Annað hefur komið á daginn og það er fróðlegt að bera saman gengi Liverpool með og án Luis Suarez síðan í janúarmánuði. Liverpool hefur nefnilega náð í 90 prósent stiga í boði án stjörnuframherja síns og hefur haldið miklu oftar hreinu en með hann inn á vellinum. Hér munar vissulega miklu um frábæra frammistöðu þeirra Daniel Sturridge og Philippe Coutinho sem hafa skorað saman ellefu mörk í þessum átta leikjum sem Suarez hefur verið fjarverandi. Tölfræðin er byggð á úttekt stuðningsmannasíðu Liverpool, This is Anfield, fyrir leik Liverpool og Manchester United um helgina.Tölfræði Liverpool með og án Suarez frá því í janúar:Suarez í byrjunarliði Liverpool: Manchester City-Liverpool 2-2 Liverpool-West Bromwich Albion 0-2 Liverpool-Swansea 5-0 Wigan-Liverpool 0-4 Liverpool-Tottenham 3-2 Southampton-Liverpool 3-1 Aston Villa-Liverpool 1-2 Liverpool-West Ham United 0-0 Reading-Liverpool 0-0 Liverpool-Chelsea 2-2Samtals:16 stig af 30 mögulegum, 53 prósent stiga í boði, haldið hreinu 4 sinnum og markatalan er +7.Suarez ekki í byrjunarliði Liverpool: Newcastle - Liverpool 0-6 Liverpool-Everton 0-0 Fulham-Liverpool 1-3 Liverpool-QPR 1-0 Liverpool-Stoke City 1-0 Aston Villa-Liverpool 0-1 Liverpool-Mancheser United 1-0Samtals:19 stig af 21 mögulegu, 90 prósent stiga í boði, haldið hreinu 6 sinnum og markatalan er +12.
Enski boltinn Mest lesið Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Nunez farinn frá Liverpool Enski boltinn Haaland á skotskónum í sigri Man. City Sport Fleiri fréttir Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Sjá meira