Enski boltinn

Missti stjórn á skapi sínu í beinni útsendingu á lokadegi gluggans

Stefán Árni Pálsson skrifar
Peter Stevenson ,fréttamaður SkySports News, lenti í kröppum dansi fyrir utan æfingasvæði Liverpool þegar hann var í beinni sjónvarpsútsendingu.

Lokadagur félagaskiptagluggans er í dag og lokaði hann klukkan 22:00 að íslenskum tíma í kvöld. Fréttamenn Sky Sports eru á vakt allan daginn og fluttu fréttir af kaupum og kjörum í allan dag.



Stevenson átti í vandræðum með að tjá sig í beinni útsendingu og missti stjórn á skapi sínu við krakka sem voru beint fyrir aftan hann.

Hægt er að sjá atvikið hér að ofan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×