Enski boltinn

Arsenal með sinn fyrsta sigur | Podolski með tvö

Arsenal vann fínan sigur á Fulham í 2. umferð ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 3-1 sigri gestanna.

Frakkinn Olivier Giroud gerði fyrsta mark leiksins eftir um stundarfjórðung þegar hann fylgdi vel á eftir frákasti inn í vítateig Fulham.

Lukas Podolski kom síðan Arsenal í 2-0 rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins. Þjóðaverjinn var síðan aftur á ferðinni hálftíma fyrir leikslok þegar hann kom gestunum í 3-0.

Darren Bent náði að minnka muninn á 77. Mínútu eftir að hann var nýkominn inná.

Niðurstaðan því 3-1 sigur Arsenal og bæði lið hafa því unnið einn leik í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×