Rafa Benitez, stjóri Chelsea, lét gamminn geysa eftir bikarleik í vikunni og þar lýsti hann því yfir að hann myndi yfirgefa félagið í lok tímabilsins. Það sem meira er þá lét hann stuðningsmenn heyra það.
Það eru svo sem engin ný tíðindi að hann fari í sumar enda bara með samning út tímabilið. Því er þó spáð núna að hann fái ekki að klára tímabilið enda hafa borist fréttir af óróa í klefanum.
Benitez greindi frá því að þrátt fyrir allt væri samband hans og Roman Abramovich, eiganda Chelsea, gott og hann býst ekki við að fá sparkið fyrir lok tímabilsins.
"Nei, ég á ekki von á því. Stjórnin veit vel hvernig ég vinn og hvað við erum að reyna að gera."
Benitez býst við að klára tímabilið

Mest lesið




„Ég sé Messi ekki missa af HM 2026“
Fótbolti


Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti


Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn

