Ivanović tryggði Chelsea öll stigin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2013 18:15 Mynd/NordicPhotos/Getty
Chelsea hefur fagnað sigri í tveimur fyrstu leikjum sínum á tímabilinu og Jose Mourinho fær því draumabyrjun á Stamford Bridge. Chelsea vann 2-1 sigur á Arsenal-bönunum í Aston Villa á Brúnni í kvöld. Branislav Ivanović tryggði Chelsea öll stigin með laglegu skallamarki 17 mínútum fyrir leikslok en markið átti líklega aldrei að standa auk þess að Serbinn átti jafnvel að vera farinn útaf með rautt spjald. Aston Villa gat fengið eitthvað út úr þessum leik því Andreas Weimann fékk mjög gott færi á lokamínútunum og Aston Villa liðið átti að fá vítaspyrnu í uppbótartíma þegar John Terry fékk boltann í hendina í vítateignum. Chelsea byrjaði af miklum krafti eins og í 2-0 sigrinum á móti Hull um helgina og var komið í 1-0 eftir sex mínútur. Markið skráist sem sjálfsmark Antonio Luna en Brad Guzan, markvörður Aston Villa, varði þá skot Eden Hazard í Luna og í eigið mark. Aston Villa náði óvænt að jafna leikinn á þriðju mínútu í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Christian Benteke skoraði eftir stoðsendingu frá Gabriel Agbonlahor. Christian Benteke skoraði tvö í 3-1 sigri á Arsenal í fyrstu umferðinni og er því kominn með þrjú mörk. Benteke var hættulegur Branislav Ivanović skoraði sigurmarkið með skalla eftir aukaspyrnu Frank Lampard á 73. mínútu. Það var rangstöðulykt af markinu en það var dæmt gott og gilt. Ivanović hefði líka getað verið farinn útaf með rautt spjald því skömmu áður fékk hann gult spjald eftir viðskipti sín við Christian Benteke.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira