Enski boltinn

Chamberlain frá fram í nóvember | Ekki sex vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex Oxlade-Chamberlain
Alex Oxlade-Chamberlain Mynd / Getty Images
Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Arsenal, verður líklega frá keppni fram í nóvember en ekki næstu sex vikurnar eins og Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, hafði staðfest í gær. 

Leikmaðurinn þurfi að fara af velli í leik Arsenal og Aston Villa um helgina en leikurinn fór 3-1 fyrir Aston Villa.

„Hann verður frá keppni næstu  sex vikurnar en leikmaðurinn tognaði illa,“ sagði Arsena Wenger í gær.

„Hann mun ekki þurfa fara í aðgerð sem eru jákvæðar fréttir fyrir okkur.“

Arsenal mætir Fenerbahçe í umspili um laust sæti í Meistaradeild Evrópu í kvöld og ferðaðist leikmaðurinn ekki með liðinu til Tyrklands.

Chamberlain hefur aftur á móti sent frá sér tíst á síðu sinni þar sem kemur fram að hann verði frá keppni næstu þrjá mánuðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×