Enski boltinn

Wilshere stríddi foreldrum sínum

Jack Wilshere.
Jack Wilshere.
Það vantar ekki húmorinn í Jack Wilshere, miðjumann Arsenal og enska landsliðsins, eins og hann sýndi og sannaði í morgun.

Foreldrar hans voru þá í viðtali á útvarpsstöð BBC og tilkynnti stöðin um viðtalið á Twitter. Óskaði hún einnig eftir spurningum frá hlustendum.

Wilshere var fljótur til svara.

"Hvenær verður þvotturinn minn tilbúinn? Við eigum leik á morgun og mig vantar buxur," skrifaði Wilshere á Twitter og svarið hefur vakið mikla kátínu.

Tístið umtalaða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×