Enski boltinn

Demichelis á leiðinni til Manchester City

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Martin Demichelis
Martin Demichelis Mynd/Gettyimages
Samkvæmt heimildum Skysports er argentínski varnarmaðurinn Martin Demichelis á leiðinni í læknisskoðun hjá Manchester City.

Demichelis sem kom til Atletico Madrid frá Malaga fyrir þetta tímabil þekkir Manuel Pellegrini frá tíma sínum hjá Malaga á síðasta tímabili. Talið er að hann muni kosta Manchester City fjórar milljónir punda.

Pellegrini er á eftir Demichelis vegna meiðsla en Vicent Kompany, fyrirliði Manchester City er frá næstu sex vikur og Matija Nastasic er að stíga upp úr meiðslum.

Demichelis kom frítt til Atletico Madrid fyrir aðeins tveimur mánuðum eftir að samningur hans hjá Malaga rann út. Hann hefur spilað 37 landsleiki fyrir Argentínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×