Enski boltinn

Swansea sigraði á The Hawthorns

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Pablo Hernandez
Pablo Hernandez Mynd/Gettyimages
Swansea unnu sinn fyrsta sigur á þessu tímabili þegar þeir mættu á The Hawthorns. Swansea tapaði fyrstu leikjum sínum á tímabilinu gegn Manchester United og Tottenham en náðu þremur stigum í dag.

Ben Davies skoraði fyrsta mark leiksins, Pablo Hernandez átti þá fína rispu upp hægri kantinn og sendi fyrirgjöf þar sem Davies var mættur og tók hann viðstöðulaust á lofti. Pablo Hernandez gerði svo út um leikinn tíu mínútum fyrir leikslok eftir sendingu frá Michu.

Með sigrinum fer Swansea úr botnsæti deildarinnar en W.B.A er aðeins með eitt stig úr þremur leikjum eftir leik dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×