Suarez vill vinna aftur traust stuðningsmanna Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2013 15:30 Luis Suarez á æfingu með Liverpool. Mynd/NordicPhotos/Getty
Stuðningsmenn Liverpool eru ekki búnir að gleyma Úrúgvæmanninum Luis Suarez en frábært gengi liðsins án hans hefur algjörlega breytt umræðunni í kringum félagið. Liverpool hefur unnið þrjá fyrstu leiki tímabilsins án Suarez sem gerði allt til að losna frá Anfield en er nú tilbúinn að vinna hug og hjörtu stuðningsmannanna á nýjan leik. Luis Suarez hitti blaðamenn í Úrúgvæ þar sem hann er nú staddur í landsliðsverkefni en Úrúgvæ mætir Perú og Kólumbíu á næstu dögum í undankeppni HM 2014. „Þessu máli lauk fyrir löngu fyrir mér. Ég tók þá ákvörðun að spila áfram með Liverpool. Ég vil vera áfram hjá Liverpool og ætla að berjast fyrir klúbbinn," sagði Luis Suarez en hann á enn eftir að taka út tvo leiki af leikbanni sínu sem Suarez var dæmdur í fyrir að bíta Chelsea-manninn Branislav Ivanovic. „Ég mun fara aftur til Liverpool eftir þetta landsliðsverkefni og vonandi verð ég sami leikmaður áður og ennfremur leikmaður sem stuðningsfólkið getur treyst á. Ég hef sagt að ég vilji spila í Meistaradeildinni en þegar það gerðist ekki, þá vissi ég samt sem áður að ég yrði ánægður að eyða framtíðinni hjá Liverpool," sagði Suarez. Úrúgvæ er eins og er ekki meðal þeirra fjögurra þjóða sem komast beint á HM en Úrúgvæ situr sem stendur í fimmta sæti sem myndi skila liðinu umspilsleikjum við Jórdaníu eða Úsbekistan. „Ég ætla að einbeita mér að því að undirbúa mig fyrir fyrsta leik með Liverpool og það er gott fyrir mig að fá á meðan tækifæri til að spila með Úrúgvæ. Það eru fjórir leikir framundan sem ráða því hvort við komust á HM. Ég vil skila mikilvægu hlutverki í þessum leikjum," sagði Suarez.
Enski boltinn Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn „Eyðileggur íþróttina“ Sport Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Fleiri fréttir Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Sjá meira