„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Árni Gísli Magnússon skrifar 16. september 2026 22:11 Oddur Grétarsson var ánægður með sigur á erkifjendunum. Þór Akureyri Þór hafði betur gegn erkifjendum sínum í KA í þriðju umferð Olís deildar karla þegar liðin mættust í KA heimilinu í kvöld. Eftir brösusa byrjun tóku Þórsarar við sér og unnu 31-35 sigur eftir spennuþrungnar lokamínútur.
Oddur Grétarsson, leikmaður Þórs, skoraði þrjú mörk úr þremur skotum ásamt því að standa vörnina vel. Hann var rétt að ná sér niður úr fagnaðarlátunum þegar blaðamaður náði tali af honum. Hvernig líður þér eftir þessa veislu? „Bara frábærlega, þetta var bara geðveikt, maður var með gæsahúð hvort sem maður sat á bekknum eða inn á. Geðveik umgjörð hjá KA mönnum eins og við var að búast. Þessir leikir, það er bara heiður að fá að taka þátt í svona leik og svo að vinna það er líka æðislegt.“ Þú ert væntanlega búinn að vera bíða spenntur eftir þessum leik í tvær vikur? „Kannski í sex daga, eftir HK leikinn, við þurftum fyrst að hugsa um hann og jú ég viðurkenni það þó maður sé orðinn 36 ára það er alltaf fiðringur og það er extra fiðringur fyrir svona leik þannig það hættir ekkert og má ekkert hætta, annars væri ég ekki lengur í þessu“ Slæm byrjun Þórs Þórsarar byrjuðu leikinn mjög illa og voru 5-1 undir eftir sjö mínútur þegar Daniel Birkelund tók leikhlé fyrir Þór. KA komst svo í 7-2 áður en Þórsarar rönkuðu við sér og úr varð alvöru leikur. „Það var eins og það væri einhver sviðsskrekkur í mönnum, við vorum að skjóta hræðilega, bara taka lélegar ákvarðarnir og bara skot á vitlausum tempóum og þeir náttúrulega skoruðu úr hraðaupphlaupum líka auðveld mörk. Við þurftum bara að endurstilla og mér fannst við gera það og gera það vel. Sýndum karakter að komast aftur inn í leikinn og gott betur og síðan vara bara ekkert aftur snúið, mér fannst við bara vera betri í dag svona heilt yfir.“ Hefur upplifað margt en þetta er einstakt Þegar lokaflautið gall í húsinu braust úr gríðarlegur fögnuðu meðal stuðningsmanna Þórs og leikmanna sem hlupu í hornið til þeirra og úr urðu mikil fagnaðarlæti og öskur og var Oddur því næst spurður hvernig tilfinningin væri að upplifa þetta augnablik sem uppalinn leikmaður Þórs í KA-heimilinu. „Ég get ekkert lýst því sko, þetta var bara geðveikt, maður er bara með gæsahúð. Ég hef upplifað margt á mínum ferli en þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“. Þórsarar fengu fyrir tímabilið fjóra danska leikmenn til að breikka og styrkja hópinn. Oddur segir þá koma vel inn í liðið. „Bara frábærlega. Þetta eru geggjaðir strákar, þetta eru strákar sem stefna langt í boltanum og eru komnir hérna til að verða betri leikmenn og upplifa bara aðra hluti en þeir voru að gera í Danmörku og held þeir sjái ekkert eftir því. Þeir hafa komið mjög vel inn í þetta og fyrir utan það erum við með miklu meiri breidd núna í liðinu. Getum rúllað miklu meira á liðinu og erum miklu stöðugra lið heldur en í fyrra“, sagði Oddur að lokum.
Olís-deild karla Þór Akureyri Mest lesið Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport KA - Þór | Barist um Akureyri Handbolti Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Fótbolti Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ Fótbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Körfubolti Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Fleiri fréttir Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur KA - Þór | Barist um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Sjá meira