„Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Andri Broddason skrifar 16. september 2026 19:32 Annie Mist segir hreinlæti skipta miklu máli í keppnum eins og Hyrox. Samsett/Vísir Annie Mist Þórisdóttir vorkenndi Joönna Wietrzyk þegar hún sá myndir af henni eftir að hún kúkaði á sig í miðri Hyrox-keppni. Samkenndin minnkaði þó þegar hún frétti að hún hefði haldið áfram keppni.
Annie Mist mætti í Reykjavík síðdegis í dag til þess að ræða atvik Joönna Wietrzyk sem hefur verið mikið á milli tannanna á fólki síðustu daga. „Það er ekki mjög algengt að þetta gerist þegar þú ert að keppa. Það hefur margoft gerst hjá konum að þær missi kannski þvag. En þetta kemur fyrir,“ sagði Annie Mist og sagðist oft hafa verið í mikilli áreynslu en aldrei lent í jafn slæmu ástandi og Joanna Woetrzyk. Hreinlæti skiptir miklu máli í keppnum sem íþróttafyrirtækið Hyrox stendur fyrir þar sem keppendur eru á stöðvum hver á fætur öðrum. Búið er að herða ýmsar reglur til að halda keppnissvæðinu í eins góðu ásigkomulagi og hægt er. „Ef þú skirpir þegar þú ert að keppa fékkstu tveggja mínútna refsingu en ég held að núna sértu rekinn úr keppni. Þegar þú ert að keppa í Hyrox þá er einhver sem kemur beint á eftir þér, þú gerir burpees, ert að leggjast niður á gólfið og það er einhver sem kemur beint á eftir þér. Það er ekki eins og það sé verið að skúra og þrífa á milli. Það er bara keppni í gangi í fleiri klukkutíma þar sem fólk rúllar í gegnum brautirnar,“ sagði Annie Mist og bætti við að ef það sama myndi gerast í maraþonhlaupi þá væri auðvelt að hlaupa fram hjá óþrifnaðinum. Joanna Wietrzyk bætti heimsmetið í Hyrox fyrr á árinu þegar hún fór á 54 mínútum og 25 sekúndum og var því fyrsta konan til þess að fara undir 55 mínútur. Annie Mist hefur verið á toppnum í Crossfit og hefur lagt ýmislegt á sig en hún hefði ekki haldið áfram ef hún hefði kúkað á sig. „Í fyrsta lagi er ömurlegt að þetta gerist, greyið stelpan. En ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni og farið til hliðar. Þetta mót skipti ekki öllu máli og hún þurfti ekki að vinna þetta mót.“ Fólk á hliðarlínunni átti að stíga inn í Annie Mist tekur þó fram að ábyrgðin sé ekki bara hjá keppandanum heldur líka þjálfurum hennar og aðstandendum. „Að sjálfsögðu hefðu þeir sem eru að halda mótið átt að taka hana úr keppni. Þetta er ekki bara ógeðslegt heldur getur þetta líka verið hættulegt. Fólk getur orðið fárveikt af þessu. Einhvers staðar þarf að draga mörkin og ég held að skipuleggjendur mótsins viti að þeir hafi gert mistök þarna.“ Annie Mist sagðist hafa brugðið þegar hún sá myndir af Wietrzyk og vorkennt henni. Samkenndin hafi þó minnkað þegar hún komst að því að hún hélt áfram keppni. „Klárlega hefði hún átt að hætta, ég hefði mögulega litið öðruvísi á þetta ef þetta hefði verið heimsmeistaramót og heimsmeistaratitill undir.“ Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira