„Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ Árni Gísli Magnússon skrifar 16. september 2026 23:17 Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, segir ríkinn milli Þórs og KA vera einstakann. Skapti Hallgrímsson/akureyri.net Daniel Birkelund, þjálfari Þórs, var glaður í bragði eftir sætan sigur gegn erkifjendunum í KA en lokatölur urðu 31-35 í KA heimilinu. „
Akkúrat núna er ég mjög ánægður og glaður með liðið. Ég sagði við strákana inni í klefa að ég væri stoltur af handboltanum sem þeir spiluðu langan parta leiksins. Ég er jafnvel enn meira stoltur af því hvernig við nálgumst verkefnið og hvernig við gerðum þetta saman og hvernig við einhvern veginn tökumst á við mismunandi verkefni sem leikur eins og þessu hendir í þig.“ „Ég sagði fyrir leikinn að þessir leikir taka oft langan tíma og manni finnst eins og þetta séu þrír eða fjórir leikir í einu. Það gerist svo margt; yfirhöndin getur sveiflast fram og til baka milli liðanna, tvær mínútur hér og þar, rautt spjald, mikil spenna, miklar tilfinningar, svo það gerist svo margt og við tókumst á við þetta allt á frábæran hátt þannig að andlegi hlutinn var bara tíu af tíu, mjög mjög ánægður með það og stoltur af strákunum fyrir það.“ Þórsarar lentu 5-1 og 7-2 undir snemma leiks og litu alls ekki vel út á meðan KA menn gengu á lagið. Daniel tók leikhlé og fór yfir málin sem breytti leiknum, en hvað sagði hann við strákana? „Því miður var það enginn snilli, þetta var í rauninni bara áminning um hvað við vildum gera í leiknum, reyna að ná okkur af stað og bara hrista af okkur þessa byrjun í rauninni. Það voru engar stórvægilegar breytingar, við breyttum engu taktískt heldur bara koma okkur af stað og panika ekki og vita handboltaleikir eru stundum svona. Stundum klúðrarðu nokkrum skotum í byrjun, þeir finna nokkur hraðaupphlaup og allt í einu er staðan 7-2 og leikurinn er ekki einu sinni byrjaðir. Þaðan af bara taka eitt mark í einu hægt og rólega og vinna okkur aftur inn i leikinn og mér fannst strákarnir gera það glæsilega og eins og ég sagði sýndu frábært hugarfar.“ Rígurinn einstakur Daniel, sem kemur frá Noregi, segir ríginn á milli Þór og KA vera einstakan. „Ég hef sagt það áður að þetta er mjög sérstakt. Ég nýt þessara leikja mjög vel og sagði það líka í fyrra þegar við vorum hér og töpuðum fyrir þeim, jafnvel þó það sé ömurlegt að tapa þá fannst mér það samt virkilega flottur handboltaleikur þannig ég er alltaf spenntur fyrir þessum leikjum. Rígurinn, spennan, tilfinningarnar, að þetta skipti svona miklu máli fyrir alla á vellinum en líka að við séum að spila fyrir eiginlega allt Þórs samfélagið og það þýðir eitthvað fyrir meira en bara strákana sem eru að spila, það er sérstakt. Mér finnst þessir leikir magnaðir og nú unnum við einn þannig þetta verður bara betra og betra.“
Olís-deild karla Þór Akureyri Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira