Enski boltinn

Katrín með eitt af mörkum mánaðarins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir á eitt af fallegustu mörkum ágústmánaðar í efstu deild á Englandi.

Katrín skoraði markið glæsilega í 4-3 útisigri Liverpool á Bristol Academy þann 10. ágúst. Um bylmingsskot er að ræða utan teigs sem fer af slánni og inn efst í markhorninu. Markið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Liverpool situr í efsta sæti deildarinnar með 27 stig eftir ellefu leiki. Liðið hefur unnið fjóra leiki í röð. Arsenal er tveimur stigum á eftir en á leik til góða.

Liverpool tekur á móti botnliði Doncaster Belles í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×