Enski boltinn

Lamela dýrasti leikmaður í sögu Tottenham

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Erik Lamela.
Erik Lamela. Mynd/Heimasíða Tottenham
Tottenham hefur gengið frá kaupunum á Erik Lamela frá AS Roma. Kaupverðið er 30 milljónir punda.

Lamela er 21 árs framliggjandi miðjumaður sem er uppalinn hjá River Plate. Lamela spilaði 40 leiki með argentínska liðinu áður en hann gekk í raðir Roma árið 2011.

Hjá ítalska liðinu spilaði hann 67 leiki í öllum keppnum og skoraði úr þeim 21 mark. Lamela hefur spilað þrisvar fyrir landslið þjóðar sinnar.

Ljóst er að koma Lamela eykur samkeppni Gylfa Þórs Sigurðssonar um sæti í liðinu til muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×