Enski boltinn

Giroud tryggði Arsenal sigur

Giroud fagnar marki sínu í dag.
Giroud fagnar marki sínu í dag.
Arsenal hefur verið með gott tak á Tottenham á heimavelli sínum undanfarin ár og á því varð engin breyting í dag. Þá vann Arsenal góðan 1-0 sigur. Bæði lið eru með sex stig í deildinni eftir leikinn.

Um miðjan fyrri hálfleik komst Arsenal yfir með frábæru marki Olivier Giroud. Fékk sendingu í teiginn sem hann kláraði af stakri snilld.

Leikurinn var annars mjög líflegur og bæði lið að fá góð færi. Þeim gekk þó bölvanlega að skora og þetta eina mark Giroud skildi á milli.

Gylfi Þór Sigurðsson sat á bekk Tottenham allan leikinn. Hann kemur því vel hvíldur í landsleikinn á föstudag.

Staðan í ensku úrvalsdeildinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×