Enski boltinn

Björn Bergmann á skotskónum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björn Bergmann Sigurðarson.
Björn Bergmann Sigurðarson. Nordicphotos/getty
Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson skoraði fyrra mark Wolves sem lagði Crawley Town 2-1 í ensku c-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Björn Bergmann nýtti tækifærið í byrjunarliði Úlfanna og skoraði strax á sjöundu mínútu leiksins. Þannig stóðu leikar þegar venjulegur leiktími var liðinn. Uppbótartíminn var með dramatískara lagi. Gestirnir jöfnuðu metin áður en Leigh Griffiths sigurmarkið á fjórðu mínútu viðbótartímans.

Markið var að fyrsta hjá Birni Bergmann á leiktíðinni og og þriðji sigur Wolves í röð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×