Enski boltinn

Tottenham á eftir Vlad Chiriches

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Chiriches í baráttunni við Arjen Robben í landsleik Rúmeníu og Hollands
Chiriches í baráttunni við Arjen Robben í landsleik Rúmeníu og Hollands MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er langt komið í viðræðum við rúmenska félagið Steaua Bucharest um kaup á rúmenska landsliðsmanninum Vlad Chiriches.

Viðræðurnar eru langt komnar en talið er að kaupverðið á hinum 23 ára gamla varnarmanni sé í kringum 7 milljónir punda.

Laurentiu Reghechampf þjálfari Steaua segir að Chiriches muni ganga til liðs við Tottenham eftir seinni viðureign Steaua og Legia Varsjá í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn.

„Chriri er í góðu formi og félögin hafa samþykkt söluna. Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd,“ sagði Reghechampf.

„Ég vona að hann hjálpi okkur á þriðjudaginn og að hann haldist heill. Félagið græddi pening á honum, ég get ekki sagt hversu háa upphæð en hún var há,“ sagði þjálfarinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×