Enski boltinn

Tottenham með góðan sigur á Swansea

Tottenham vann fínan sigur á Swansea, 1-0, á heimavelli en Gylfi Þór Sigurðsson var á varamannabekknum til að byrja með.

Roberto Soldado skoraði eina mark leiksins þegar rúmlega hálftími var eftir af leiknum úr vítaspyrnu.

Mjög svo tæpur dómur en Soldado skoraði sitt annað mark í deildinni og hafa þau bæði komið úr vítaspyrnu.

Gylfi Þór kom inn á sem varamaður í síðari hálfleiknum og komst lítið í takt við leikinn.

Tottenham hefur því unnið báða leiki sína á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×