Enski boltinn

Upphitun fyrir stórleik kvöldsins

Á Vísi í vetur verður hægt að sjá upphitunarmyndbönd fyrir leikina í enska boltanum. Stórleikur umferðarinnar fer fram í kvöld þegar Jose Mourinho mætir með Chelsea á Old Trafford þar sem Englandsmeistarar Man. Utd bíða.

Þetta verður áhugaverður leikur að mörgu leyti. Mourinho að snúa aftur á Old Trafford og mæta manninum sem fékk starfið sem hann hafði víst sjálfur mikinn áhuga á.

Svo hefur Chelsea verið á eftir Wayne Rooney, leikmanni Man. Utd, og spurning hvort hann spili gegn liðinu sem vill kaupa hann í kvöld.

Myndbandið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×