Liverpool slapp með skrekkinn í deildabikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2013 21:21 Daniel Sturridge fagnar öðru marka sinna í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Liverpool vann 4-2 sigur á Notts County í enska deildabikarnum í kvöld en liðið þurfti framlengingu til að landa sigrinum. Liverpool komst í 2-0 en slakaði á í seinni hálfleik og missti leikinn í framlengingu. Daniel Sturridge skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í kvöld og hefur þar með skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum liðsins á tímabilinu. Raheem Sterling var valinn í enska landsliðið í dag og fagnaði því með því að koma Liverpoll í 1-0 strax á 4. mínútu. Hann fékk boltann langt fyrir utan teig en labbaði framhjá varnarmönnum Notts County og skoraði laglega. Daniel Sturridge er búinn að skora sigurmörkin í báðum deildarleikjum Liverpool og hann bætti við öðru marki á 29. mínútu þegar hann afgreiddi frábærlega sendingu Steven Gerrard inn í teig. Það leit því allt út fyrir þægilegan sigur Liverpool en annað átti eftir að koma á daginn. Varnarmaðurinn Yoann Arquin var fyrstur til að skora hjá Liverpool á tímabilinu þegar hann minnkaði muninn á 62. mínútu. Adam Coombes jafnaði síðan leikinn sex mínútum fyrir leikslok og því þurfti að framlengja leikinn. Kolo Toure fór meiddur af velli í framlengingunni og liðið var búið með allar skiptingarnar og þurfti því að klára leikinn manni færri. Liverpool tókst engu að síður að skora tvö mörk. Daniel Sturridge kom Liverpool í 3-2 með marki á 105. mínútu leiksins og Jordan Henderson bætti síðan við marki á 110. mínútu. Liverpool vann því leikinn 4-2.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Dagskráin í dag: Spenna í körfunni og fjör í Bestu mörkunum Sport „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Fótbolti Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina Sport Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira