Enski boltinn

Podolski frá keppni næstu þrjár vikurnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lukas Podolski er hann meiddist í gær.
Lukas Podolski er hann meiddist í gær. Mynd/getty images
Enska knattspyrnuliðið Arsenal flaug áfram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er liðið vann góðan sigur á  Fenerbahce í gær í öðrum leik liðanna, 2-0, og unnu því einvígið samanlagt 5-0.

Arsenal verður því í riðlakeppninni 16. árið í röð.

Þjóðverjinn Lukas Podolski gæti aftur á móti misst af næstu þremur vikunum með Arsenal-liðinu en leikmaðurinn tognaði í leiknum í gær.

„Neikvæðu fréttirnar eftir þennan leik eru að við erum líklega að missa Podolski frá keppni næstu þrjár vikurnar,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir leikinn í gær.

Hópur Arsenal er þunnskipaður og hefur stjórinn mikið verið gagnrýndur fyrir að styrkja ekki liðið en þeir Alex Oxlade-Chamberlain og Mikel Arteta verða báðir í einhvern tíma frá vegna meiðsla.

„Við verðum að sjá til hversu slæm þessi meiðsli eru en eins og allur heimurinn veit erum við að leita af leikmönnum og vonandi náum við að styrkja hópinn áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×