Enski boltinn

Enginn Costa til Liverpool

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rodgers virðist vera búinn að gefa Costa og Cissokho upp á bátinn.
Rodgers virðist vera búinn að gefa Costa og Cissokho upp á bátinn. Nordicphotos/Getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, virðist hafa gefist upp á að fá Brasilíumanninn Diego Costa til liðsins.

Liverpool er talið hafa boðið í Costa fyrr í mánuðinum en Costa hefur sagst vera ánægður í herbúðum Atletico Madrid. Rodgers telur að Costa sé búinn að framlengja samning sinn við spænska félagið.

„Við náðum í nokkra leikmenn snemma í sumar og vonumst til þess að bæta við leikmönnum áður en glugganum verður lokað," hefur Daily Mail eftir Rodgers.

Norður-Írinn sagði einnig ekkert að frétta af áhuga Liverpool á vinstri bakverðinum Aly Cissokho hjá Valencia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×