Enski boltinn

Walcott allt í öllu í sigri á City

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Theo Walcott skoraði eitt mark og lagði upp tvö í 3-1 sigri á Manchester City í æfingaleik í Helsinki í dag.

Walcott kom Arsenal á bragðið með snyrtilegu marki snemma leiks. Lundúnaliðið var töluvert sterkari aðilinn gegn liðsmönnum Manuel Pellegrini og leiddu í hálfleik 1-0.

Walcott var aftur á ferðinni eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik og lagði upp mark fyrir Walesverjann Aaron Ramsey. Frakkinn Olivier Giroud skoraði þriðja markið þremur mínútum síðar og enn átti Walcott heiðurinn að markinu.

Spánverjinn Alvaro Negredo minnkaði muninn fyrir City tíu mínútum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×