Enski boltinn

Celtic lagði Liverpool

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Portúgalinn Amido Baldé skoraði eina mark leiksins þegar Celtic lagði Liverpool 1-0 að velli í æfingaleik í Dublin í dag.

Baldé skoraði eina markið á tólftu mínútu eftir að hafa hirt boltann af Andre Wisdom, klobbað hann og skorað framhjá Simon Mignolet í marki Liverpool.

Liverpool hafði töluverða yfirburði í leiknum en gekk illa að skapa sér dauðafæri. Jöfnunarmarkið kom aldrei og þeir grænu og hvítu hrósuðu sigri.

Leikurinn var sá síðasti á undirbúningstímabilinu hjá Liverpool. Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×