Carragher: Suarez of góður fyrir bæði Liverpool og Arsenal Kristinn Páll Teitsson skrifar 11. ágúst 2013 10:00 Carragher og Suarez Mynd/Gettyimages
Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool vill meina að framherji Liverpool, Luis Suarez sé of góður bæði fyrir Liverpool og Arsenal sem hafa verið á eftir framherjarnum í sumar. Carragher sem lagði skóna á hilluna í vor verður sérfræðingur hjá Skysports í vetur ásamt því að skrifa vikulega pistla í Daily Mail. Suarez sem hefur skorað 51 mark í 91 leik fyrir Liverpool hefur verið orðaður við mörg stórlið í Evrópu í sumar. Suarez hefur sjálfur verið yfirlýsingarglaður í fjölmiðlum um ósk sína að yfirgefa Liverpool en félagið virðist ætla að standa á sínu og ætlar ekki að leyfa framherjanum að fara. „Ef Barcelona, Real Madrid eða Bayern Munchen væru á eftir honum myndi ég óska honum góðs gengis og styðja við bakið á honum. Það eru lið á hans kalíber, lið sem eiga góðan möguleika á að vinna Meistaradeildina. Ég átta mig ekki alveg á ósk hans að fara til Arsenal, þeir hafa ekki barist um titla undanfarin ár, ekki haft mikil áhrif í Meistaradeildinni og engu nær að vinna ensku úrvalsdeildina," Þrátt fyrir nokkur tilboð frá Arsenal sem Suarez vill ólmur að Liverpool taki þá ætla Liverpool að halda Suarez. „Ég fékk að æfa með honum fyrir góðgerðaleikinn í síðustu viku og það var allt annað að sjá hann á æfingum. Frá fyrsta degi hjá klúbbnum æfði hann eins og stríðsmaður sem elskaði fótbolta og sýndi ótrúlega hluti. Viðhorfið hans var frábært og hver æfing var jafn mikilvæg og leikur, markið sem hann skoraði frá miðju gegn Norwich höfðum við séð löngu áður á æfingu. Núna var hinsvegar allt annað að sjá hann, hann vildi ekki boltann og hafði engann áhuga að vera með," Suarez æfir einn þessa dagana og kemur það Carragher ekki á óvart. „Ég bjóst aldrei við að Suarez myndi bregðast við eins og Torres gerði á síðustu mánuðum sínum hjá félaginu. Þú sást á Torres síðustu 18 mánuðina að hann vildi ekki vera þar og núna eru sömu merki á lofti hjá Suarez sem er leiðinlegt. Margir góðir menn hafa staðið með Suarez síðan hann gekk til liðs við Liverpool, bæði Rodgers og Dalglish stóðu þétt við bakið á honum sama hvað gekk á. Suarez ætti að gefa Liverpool eitt ár í viðbót, gera sitt besta og gefa Liverpool virðinguna og hollustu sem þeir eiga skilið," sagði Carragher.
Enski boltinn Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira