Enski boltinn

Hart: Rooney er einbeittur á verkefni Englands

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rooney á landsliðsæfingu í gær.
Rooney á landsliðsæfingu í gær. Mynd / Getty Images
Joe Hart, markvörður Manchester City og enska landsliðsins, vill meina að umræðan um Wayne Rooney og hvar hann spilar á næsta tímabili hafi enginn áhrif á einbeitingu leikmannsins með enska landsliðinu.

Rooney hefur verið orðaður við Chelsea  í allt sumar og vill leikmaðurinn yfirgefa Manchester United.

Chelsea hefur lagt fram tvö tilboð í leikmanninn en þeim var báðum hafnað.

„Wayne er bara Wayne, æfir eins og mikið,“ sagði Joe Hart í viðtali við Sky Sports News.

„Hann er alltaf mættur hálftíma fyrir æfingu en hann elskar fótbolta og hefur alltaf gert.

„Það er ákveðnir hlutir í gangi á hans knattspyrnuferli í augnablikinu en eins og staðan er núna er leikmaðurinn að æfa með Englandi og þetta hefur enginn áhrif á hann.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×