Lambert tryggði Southampton öll stigin - úrslitin í enska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2013 13:45 Rickie Lambert fagnar sigurmarkinu Mynd/NordicPhotos/Getty
Rickie Lambert átti frábæra innkomu í enska landsliðið í vikunni þegar hann skoraði með sinni fyrstu snertingu í sínum fyrsta landsleik og í dag tryggði hann Southampton 1-0 útisigur á West Bromwich Albion í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Aston Villa, Fulham og West Ham fögnuðu einnig sigrinum í sínum leikjum en Norwich og Everton urðu að sætta sig við 2-2 jafntefli eftir að hafa komist bæði yfir í leiknum. Sigurmark Rickie Lambert kom úr vítaspyrnu á 90. mínútu leiksins. Luke Shaw fiskaði vítið fyrir Southampton. Pajtim Kasami skoraði eina markið í útisigur Fulham á móti Paolo Di Canio og lærisveinum hans í Sunderland en sigurmarkið kom með skalla eftir hornspyrnu. Ricky van Wolfswinkel tryggði Norwich 2-2 jafntefli á móti Everton en hann var að spila sinn fyrsta deildarleik með liðinu. Öll fjögur mörk leiksins komu á tuttugu mínútna kafla í seinni hálfleik. Christian Benteke skoraði tvö mörk og Antonio Luna eitt þegar Aston Villa vann 3-1 útisigur á Arsenal sem lék manni færri síðustu 23 mínútur leiksins. Reynsluboltarnir Joe Cole og Kevin Nolan tryggðu West Ham 2-0 heimasigur á nýliðum Cardiff.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Liverpool - Stoke 1-0 1-0 Daniel Sturridge (37.)Arsenal - Aston Villa 1-3 1-0 Olivier Giroud (6.), 1-1 Christian Benteke (23.), 1-2 Christian Benteke, víti (62.), 1-3 Antonio Luna (85.)Norwich - Everton 2-2 1-0 Steven Whittaker (51.), 1-1 Ross Barkley (61.), 1-2 Seamus Coleman (65.), 2-2 Ricky van Wolfswinkel (71.)Sunderland - Fulham 0-1 0-1 Pajtim Kasami (53.)West Bromwich - Southampton 0-1 0-1 Rickie Lambert, víti (90.)West Ham - Cardiff 2-0 1-0 Joe Cole (11.), 2-0 Kevin Nolan (76.)
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira