Van Persie og Welbeck báðir með tvö mörk í 4-1 sigri United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2013 16:00 Mynd/AFP
Hollendingurinn Robin van Persie er heldur betur að byrja vel undir stjórn David Moyes. Van Persie skoraði tvö mörk í 4-1 útisigri United á Swansea í kvöld í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Moyes stýrði því United til sigurs í fyrsta deildarleiknum og skoski knattspyrnustjórinn getur ekki kvartað mikið yfir þessari byrjun. Van Persie skoraði bæði mörkin þegar Manchester United vann Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi. Danny Welbeck skoraði einnig tvö mörk í þessum flotta sigri eins og Van Persie. Það voru fleiri góðar fréttir fyrir stuðningsmenn Manchester United því Wayne Rooney kom inn á sem varamaður á 61. mínútu og lagði upp tvö síðustu mörk liðsins. Bæði mörk Robin van Persie voru af betri gerðinni. Það fyrra skoraði hann á 34. mínútu þegar hann tók niður sendingu Ryan Giggs og klippti boltann skemmtilega í markið. Það seinna skoraði kappinn með frábæru skoti fyrir utan teig á 72. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá varamanninum Wayne Rooney. Danny Welbeck skoraði fyrra mark sitt tveimur mínútum eftir að Van Persie kom United í 1-0 en Welbeck fékk þá óeigingjarna sendingu frá Antonio Valencia. Wilfried Bony minnkaði muninn fyrir Swansea í sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni áður en Danny Welbeck innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Sjá meira