Alan Shearer spáir Chelsea titlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2013 11:45 Alan Shearer varð enskur meistari með Blackburn. Mynd/AFP
Alan Shearer, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta frá upphafi, hefur mikla trú á endurkomu Jose Mourinho í enska boltann en Mourinho er tekinn við liði Chelsea á nýjan leik. „Mourinho er gulltryggður. Hann veit um hvað enska úrvalsdeildin snýst og hann veit hvernig á að vinna þessa deild. Hann veit hvað hans lið þarf að gera til að verða meistari og því hef ég mesta trú á Chelsea-liðinu núna," sagði Alan Shearer við BBC Sport. Jose Mourinho gerði Chelsea að enskum meisturum á tveimur fyrstu tímabilum sínum í ensku úrvalsdeildinni (2004-05 og 2005-06) og þá hafði félagið ekki unnið titilinn í hálf öld. „Ég elska hvernig hann vinnur, hann er frábær í fjölmiðlum og árangurinn talar sínu máli þótt að síðasta tímabilið hans hjá Real Madrid hafi ekki verið það besta hjá honum," sagði Alan Shearer. „Þegar stjóri hefur átt svona feril þá er alveg hægt að fyrirgefa honum fyrir eitt slakt tímabil. Hann nær alltaf því besta út úr sínum leikmönnum og nær góðu sambandi við þá. Hann passar upp á sína leikmenn og ver þá fyrir gagnrýni. Leikmennirnir kunna vel við það, virða það og eru tilbúnir að berjast fyrir hann," sagði Shearer. Alan Shearer skoraði 260 mörk í 441 leikjum í ensku úrvalsdeildinni frá 1992 til 2006 en hann lék með Blackburn Rovers og Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira