Guardian mælir með að fylgjast með þessum í ensku deildinni í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2013 12:30 Roberto Soldado fagnar með Gylfa Þór Sigurðssyni. Mynd/AFP
Enska úrvalsdeildin hófst klukkan 11.45 með opnunarleik Liverpool og Stoke City á Anfield í Liverpool en umferðina heldur síðan áfram í dag og á morgun en lýkur síðan með leik Man. City og Newcastle á mánudagskvöldið. Blaðamenn Guardian hafa valið fimm af nýjum leikmönnum deildarinnar sem verður hvað mest spennandi að fylgjast með taka sín fyrstu skref í ensku úrvalsdeildinni. Þetta eru þeir Roberto Soldado, Alvaro Negredo, Wilfried Bony, André Schürrle og Fernandinho.Roberto Soldado, Tottenham - Keyptur á 26 milljónir punda 28 ára spænskur landsliðsframherji sem er alltaf að og hefur raðað inn mörkum með Valencia-liðinu undanfarin þrjú tímabil en hann skoraði 59 deildarmörk í 101 leik á þessum þremur leiktíðum. Ætlar sér að brjóta tuttugu marka múrinn.Alvaro Negredo, Manchester City - Keyptur á 20,6 milljónir punda 27 ára spænskur landsliðsframherji sem skoraði sirkusmark fyrir spænska landsliðið í vikunni. Hann er þekktur fyrir að skora allskyns mörk og þau urðu alls 31 í 42 leikjum með Sevilla á síðustu leiktíð. Hefur skorað 7 mörk í 15 landsleikjum.Wilfried Bony, Swansea City - Keyptur á 12 milljónir punda 24 ára eldfljótur framherji frá Fílabeinsströndinni sem hafði betur í baráttunni við Alfreð Finnbogason um markakóngstitilinn í hollensku deildinni. Skoraði 31 deildarmark í 30 fyrir Vitesse á síðasta tímabili og miklu meira en tvöfaldaði markaskor sitt frá tímabilinu á undan.André Schürrle, Chelsea - Keyptur á 18 milljónir punda 22 ára fjölhæfur sóknarmaður sem er einn af efnilegustu knattspyrnumönnum Þýskalands. Hann ætti að henta leikstíl Jose Mourinho enda stórhættulegur í skyndisóknum, fljótur og iðinn og tilbúinn að vinna vel fyrir liðið. Hann hefur þegar skorað 7 mörk fyrir þýska landsliðið en var með 11 deildarmörk fyrir Bayer Leverkusen á síðustu leiktíð.Fernandinho, Manchester City - Keyptur á 18 milljónir punda 28 ára miðjumaður sem hefur spilað í Úkraínu undanfarin átta ár. Þetta er afar fjölhæfur leikmaður sem hefur spilað bæði sem framherji og bakverður en hans aðalstaða er á miðjunni. Stendur og fellur með því hvort að hann og Yaya Touré nái vel saman á miðjunni en þeir hafa allt til alls til að mynda sterkustu miðju ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Sjá meira