Enski boltinn

Brendan Rodgers: Frábær frammistaða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Brendan Rodgers fagnar sigri í dag.
Brendan Rodgers fagnar sigri í dag. Mynd/NordicPhotos/Getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, hrósaði sínu liði fyrir frammistöðuna í 1-0 sigri á Stoke í fyrsta leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni sem fór fram á Anfield í dag en neitaði aftur á móti að ræða mál Luis Suarez.

„Þetta var frábær framistaða hjá öllu liðinu. Stoke og Mark Hughes eiga hrós skilið því Stoke kom hingað og spilaði vel," sagði Brendan Rodgers. Liverpool fékk fjölda færa til að bæta við mörkum en gat einnig þakkað fyrir að Stoke-liðið stal ekki stigi.

Luis Suarez var meðal áhorfenda á Anfield en Brendan Rodgers ætlaði ekki að láta Úrúgvæmanninn stela sviðsljósinu af sínum leikmönnum.

„Ég ætla ekki að segja neitt um Luis Suarez vegna þeirrar virðingar sem ég ber fyrir þeim leikmönnum Liverpool sem eru að gefa allt sitt til liðsins. Það eina sem ég vel láta hafa eftir mér er að ég mjög ánægður með hvernig málið er að þróast. Við í klúbbnum horfum nú fram á veginn," sagði Rodgers.


Tengdar fréttir

Simon Mignolet varði víti í lokin og tryggði Liverpool þrjú stig

Belgíski markvörðurinn Simon Mignolet var hetja Liverpool í sínum fyrsta leik með félaginu en hann varði vítaspyrnu tveimur mínútum fyrir leikslok. Daniel Sturridge skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en stórsókn Liverpool bar ekki frekari árangur og það var nærri því búið að kosta liðið stigin í lokin.

Luis Suarez meðal áhorfenda á Anfield

Luis Suarez er meðal áhorfanda á leik Liverpool og Stoke á Anfield en þetta er fyrsti leikur ensku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð. Það bendir allt til þess að Suarez hafi sætt sig við það að Liverpool mun ekki selja hann í þessum félagsskiptaglugga.

Ekki í fyrsta sinn sem menn klikka á víti á móti Mignolet á Anfield

Simon Mignolet, nýi Belginn í marki Liverpool, bjargaði tveimur stigum fyrir sitt lið í dag þegar hann varði vítaspyrnu rétt fyrir leikslok. Þetta var frábær byrjun hjá kappanum í fyrsta deildarleik sínum fyrir Liverpool - varið víti, hreint mark og þrjú stig í húsi.

Daniel Sturridge með fyrsta mark tímabilsins

Daniel Sturridge skoraði fyrsta mark ensku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð þegar hann skoraði með flottu skoti fyrir utan teig. Mark Liverpool var búið að liggja í loftinu en Asmir Begović, markvörður Stoke, var búinn að halda Stoke á floti í upphafi leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×