Enski boltinn

Moyes: Welbeck á eftir að gera góða hluti í vetur

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Welbeck hefur skorað fimmtán mörk í 67 leikjum fyrir Manchester United.
Welbeck hefur skorað fimmtán mörk í 67 leikjum fyrir Manchester United.
Danny Welbeck, leikmaður Manchester United fór á kostum í enska boltanum um helgina en hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri liðsins á Swansea.

David Moyes, knattspyrnustjóri liðsins sagðist eftir leik vera gríðarlega ánægður með Welbeck og að hann hefði mikla trú á honum.

„Welbeck á hrós skilið eftir frammistöðu hans gegn Swansea. Hann skoraði eitt mark í deildinni í fyrra en er nú þegar kominn með tvö og er það frábært fyrir sjálfstraustið hans. Hann skoraði einnig fyrir England í vikunni þannig að þetta byrjar vel hjá honum," sagði Moyes á blaðamannafundi eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×