Enski boltinn

Chelsea með lokaboð í Rooney

Stefán Árni Pálsson skrifar
Wayne Rooney í leik með United.
Wayne Rooney í leik með United. Mynd / getty Images
Enska knattspyrnuliðið Chelsea ætla greinilega ekki að gefast upp á því að klófesta framherjann Wayne Rooney frá Manchester United en félagið ætlar að gera lokaboð í leikmanninn upp á 40 milljónir punda.

Jose Mourinho, knattspyrnu stjóri Chelsea, mun einnig hafa lofað leikmanninum að verða framherji númer eitt hjá liðinu.

Manchester United hefur áður neitað tilboði uppá 30 milljónir punda í leikmanninn en þessi 27 ára leikmaður hefur gefið það sterklega í skyn að hann vilji yfirgefa ensku meistarana í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×