Enski boltinn

James McClean til Wigan

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
James McClean (t.h.).
James McClean (t.h.). Nordicphotos/AFP
Owen Coyle, knattspyrnustjóri Wigan, hefur fengið tíunda leikmanninn til félagsins í sumar.

James McClean skrifaði undir þriggja ára samning við bikarmeistarana sem féllu úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Kaupverðið er talið vera um 2 milljónir króna eða tæpar 400 milljónir króna.

Paolo Di Canio, stjóri Sunderland, hefur verið iðinn við kolann við leikmannakaup í sumar og útlit fyrir fá tækifæri hjá McClean í vetur.

McClean er írskur landsliðsmaður sem gekk í raðir Sunderland frá Derry City fyrir tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×