Aspasmarkasúpa Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júlí 2013 15:53 Coutinho fagnar fyrsta marki leiksins Nordicphotos/getty
Liverpool vann öruggan 4-0 sigur á Preston North End í fyrsta æfingaleik liðsins í sumar. Fjölmargir leikmenn þreyttu frumraun sína með Liverpool í dag. Markvörðurinn Simon Mignolet byrjaði í marki Liverpool og átti nokkuð náðugan dag. Kolo Toure var sömuleiði í hjarta varnarinnar en það var fyrrverandi leikmaður Liverpool sem kom sínu liði til aðstoðar eftir þrettán mínútur. John Welsh, uppalinn Liverpool maður en miðjumaður Preston, braut þá á Philippe Coutinho innan teigs. Brasilíumaðurinn skoraði sjálfur úr spyrnunni. Áður en fyrri hálfleikur var allur hafði Jordon Ibe, hinn sautján ára kantmaður hinna rauðklæddu, skorað fallegt mark með langskoti.Ibe fagnar marki sínu.Mynd/Heimasíða LiverpoolLiverpool gerði fjölmargar breytingar á liði sínu í hálfleik. Iago Aspas og Luis Alberto klæddust búningnum í leik í fyrsta skipti og sá fyrrnefndi kom við sögu um miðjan síðari hálfleikinn. Þá skoraði Raheem Streling þriðja mark Liverpool eftir lipurt spil við Aspas. Spánverjinn setti Sterling einan í gegn og Englendingurinn skoraði auðveldlega. Stundarfjórðungi fyrir leikslok skoraði svo Aspas sjálfur. Hann fékk þá boltann utan teigs eftir sendingu Glen Johnson. Aspas lét vaða með vinstri fæti og í netinu söng boltinn þótt markvörður Preston hefði getað gert betur. Niðurstaðan 4-0 sigur Rauða hersins.
Enski boltinn Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Víkingur - Györ | Ungversku meistararnir mæta í Víkina Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Fleiri fréttir Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Sjá meira