Erlent

Flugvél bólivíska forsetans snúið af leið vegna Snowdens

Jakob Bjarnar skrifar
David Choquehuacna utanríkisráðherra var ekki skemmt þegar hann greindi frá atvikinu.
David Choquehuacna utanríkisráðherra var ekki skemmt þegar hann greindi frá atvikinu.
Flugvél bólivíska forsetans, Evo Morales, var snúið af leið sinni og henni lent í Austurríki í gær. Var þetta vegna gruns bandarísku leyniþjónustunnar þess efnis að uppljóstrarinn Edward Snowden væri um borð, að sögn bólivíska utanríkisráðherrans.

Opinberir aðililar, bæði í Bólivíu sem og í Austurríki segja að Snowden hafi ekki verið um borð í flugvélinni. Að sögn meinuðu bæði frönsk og portúgölsk yfirvöld þessu flugi milli Moskvu og Bólivíu að fara um lofthelgi sína.

Snowden er sagður sækja um pólitískt hæli í Bólivíu auk 20 annarra landa, til að forðast framsal til Bandaríkjanna þar sem hann getur búist við þungum dómi vegna ásakana um landráð. Bólivíumenn eru ævareiðir vegna atviksins.

Bólivíski utanríkisráðherrann, David Choquehuacna, sagði frétta- og blaðamönnum í gær að þetta væri helber lygi, hann viti ekki hver plantaði henni og vildi greina alþjóðasamfélaginu frá þessu atviki sem hann telur reginhneyksli.

Bólivíumenn eru ekki einir um að telja þetta hneyksli og "diplómatískt" stórslys. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, sem verið hefur Snowden innan handar, vandar þeim sem bera ábyrgð á þessu ekki kveðjurnar: "Sögulegur aumingjaskapur og fullkomið virðingarleysi við erlendan þjoðarleiðtoga. Hversu lágt eru ríki tilbúin til að leggjast?" spyr Kristinn í nótt á Facebook-síðu sinni en hann er staddur í New York. 

Ýmsir, sem tjáð hafa sig um málið á netinu í morgun, tala um að ríki Vestur-Evrópu leggist lágt við að þjóna lund og ofríki Bandaríkjamanna. Meðal þeirra er Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, sem hefur fylgst með málinu. Hann skrifar: "Evrópuríkin eru stimpluð til langframa sem varðhundar bófaflokkanna, er stjórna Bandaríkjunum. Verst er þó útkoma Frakklands, sem stundum þykist rífa kjaft, þegar það er óhætt, en hagar sér eins og kjölturakki, þegar í harðbakkann slær. Í morgun var áfram allt fast, því Spánn neitaði enn að virða alþjóðlegar reglur um diplómatíu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×