51 látnir hið minnsta í Egyptalandi Jóhannes Stefánsson skrifar 8. júlí 2013 18:03
Að minnsta kosti 51 létust í Egyptalandi í dag eftir að herinn hóf skothríð á stuðningsmenn Mohamed Mursi. Mótmælendurnir sögðu að herinn hefði byrjað að skjóta á fólk þar sem það lá á bæn fyrir utan bygginguna þar sem talið er að Mursi sé í stofufangelsi. Talsmaður egypska hersins, Ahmed Ali, sagði hinsvegar að herinn hefði ráðist á vopnaðar sveitir í norðausturhluta borgarinnar. „Herinn tekur á vandamálum á mjög vandaðan hátt, en það eru að sjálfsögðu takmörk á þolinmæðinni," sagði hann á blaðamannafundi. Hann sagðist hafa undir höndum sönnunargögn að herinn hefði ekki ráðist á fólk við bænir. Utan hinna látnu er talið að 435 séu særðir. Bræðralag Múslima hefur hvatt til þess að fólk rísi upp gegn hernum, en þeir hafa sakað herinn um valdarán sem gerir ástandið í Egyptalandi enn viðkvæmara. Útlit er fyrir að átökin í Egyptalandi muni harðna því ýmis íslömsk samtök hafa dregið til baka stuðning sinn við herinn, sem situr nú við stjórnvölinn í landinu. Í myndbandi sem var tekið í dag og hlaðið upp á Youtube sést þar sem vopnaður maður íklæddur hermannabúning skýtur á hóp mótmælenda af þaki. Þá sést þar sem fólk hleypur með blóðuga og særða menn, að því er virðist eftir að hafa verið skotnir. Nánar er sagt frá málinu á vef Reuters. Myndbandið er ekki fyrir viðkvæma:
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Sjá meira