Luiz féll eins og dauður svanur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. maí 2013 09:45
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, sakar Brasilíumanninn David Luiz um stórkostlegan leikaraskap í 1-0 sigri Chelsea á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Juan Mata skoraði sigurmark Chelsea þremur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Tveimur mínútum síðar áttust Brasilíumennirnir Rafael hjá United og Luiz við úti við hornfána. Luiz kom boltanum í burtu og Rafael sparkaði til landa síns. Luiz henti sér í jörðina og sást á myndavélum glotta við tönn þar sem hann lá í iðagrænu grasinu. Howard Webb rak Rafael af velli en Ferguson setur stórt spurningamerki við framkomu Luiz. „Rafael brást við en Luiz gaf honum tvö olnbogaskot rétt á undan. Þá veltir hann sér á vellinum eins og svanur í dauðakippum. Hann brosti og það er slæmt," segir Ferguson ósáttur við þróun mála í knattspyrnunni. „Svoleiðis gengur þetta fyrir sig í dag. Sá sem svarar fyrir sig fær harðari refsingu en það er klárt að Luiz setti olnbogann tvisvar í andlit hans," sagði Ferguson. Hann viðurkenndi þó að Rafael hefði misst sig. Hann væri ungur en brotið hefði að hans mati ekki endilega verðskuldað rautt spjald. Leikaraskapur Luiz hafi orðið til þess að Rafael var rekinn af velli. Atvikið umdeilda má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mata tryggði Chelsea sigur á Old Trafford Chelsea endurheimti þriðja sætið í ensku úrvalsdeildinni eftir 1-0 sigur á Englandsmeisturum Manchester United á Old Trafford. 5. maí 2013 00:01 Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira
Mata tryggði Chelsea sigur á Old Trafford Chelsea endurheimti þriðja sætið í ensku úrvalsdeildinni eftir 1-0 sigur á Englandsmeisturum Manchester United á Old Trafford. 5. maí 2013 00:01