Mancini: Þreytumerki á United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. mars 2013 13:30 Nordic Photos / Getty Images
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, vonar að erkifjendurnir og grannarnir í United muni gefa eftir á lokaspretti tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. United er nú tólf stigum á undan City á toppi deildarinnar en liðið féll þó nýverið úr leik í Meistaradeild Evrópu og missti niður 2-0 forystu gegn Chelsea í ensku bikarkeppninni. „Fótboltinn er skrýtinn. Stundum tapar maður leik og maður veit ekki af hverju. Kannski einum, tveimur eða þremur leikjum. Við náðum bara í tvö stig af níu mögulegum gegn Liverpool, Southampton og QPR fyrir stuttu síðan," sagði Mancini við enska fjölmiðla. „Untied hefur verið að spila mjög vel þetta tímabilið. Liðið spilaði frábærlega gegn Real Madrid. En á þessum tímapunkti geta öll lið fundið fyrir þreytu eftir átta mánaða keyrslu." Mancini viðurkennir að hann hafi gert mistök með því að kaupa ekki varnarmann þegar að Vincent Kompany meiddist í leik gegn Stoke í lok janúar. „Við vissum að það væri vandamál en það voru fjórir dagar eftir af glugganum. Við reyndum að kaupa varnarmann og fengum tækifæri til þess. En við töldum ekki að Vinny yrði frá í 45 daga." „Ég held að hann muni spila aftur á tímabilinu. Hann er byrjaður að hlaupa og ég vona að hann verði klár fyrir leikinn gegn Newcastle," sagði Mancini en sá leikur fer fram eftir tvær vikur.
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Þjálfari Króata ósáttur við blaðamann Vísis Fótbolti Supercross Atlanta úrslit. Sport Styrkir til VÍK Sport Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Fleiri fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Sjá meira