Erlent

Vatikanið glímir við lausnir á vandanum tveir páfar á lífi

Vatikanið í Róm glímir við að finna lausnir á hinu sjaldgæfa vandamáli að hafa tvo páfa á lífi á sama tíma.

Síðast þegar þessi staða kom upp var fyrir 700 árum síðan þegar Boniface VIII tók við embættinu af Celestine V. Sá síðarnefndi var fyrrum einsetumaður sem gafst upp á að vera páfi eftir aðeins sex mánuði í embætti.

Boniface VIII leysti þetta vandamál einfaldlega með því að læsa forvera sinn inni á herbergi í klaustri það sem hann átti eftir ólifað. Þannig var komið í veg fyrir að Celestine V yrði til vandræða fyrir embættið.

Lausn eins og þessi dugir ekki í dag. Benedikt XVI fráfarandi páfi hefur þegar sent frá sér yfirlýsingu um að hann muni ekki þvælast fyrir nýjum páfa á neinn hátt og lúta stjórn hans í einu og öllu.

Tveir þekktir ítalskir guðfræðingar hafa hinsvegar skorað á Benedikt XVI að hætta við afsögn sína því hún valdi Vatikaninu ýmsum lögfræðilegum vandamálum ekki síður en guðfræðilegum. Til að nefna eitt gæti Benedikt XVI lent í lögsókn vegna kynferðisafbrota kaþólskra presta meðan hann var páfi ef hann yfirgefur Vatikanið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×