United með fimmtán stiga forystu | Úrslit dagsins Eiríkur Stefán Asgeirsson skrifar 23. febrúar 2013 14:30
Rafael skoraði stórkostlegt mark þegar að Manchester United tryggði sér fimmtán stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Öllum fimm síðdegisleikjum dagsins er lokið. Rafael kom United yfir með þrumufleyg í fyrri hálfleik gegn QPR en markið má sjá með því að smella á hlekkinn hér fyrir ofan. Síðar í leiknum varði hann svo á línu þegar að Chris Samba skallaði að marki fyrir QPR. Ryan Giggs innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik en þetta var hans 999. leikur á ferlinum - með Manchester United, velska landsliðinu og breska Ólympíuliðinu. Hann skoraði með skoti í teig eftir sendingu Nani. United er með 69 stig á toppi deildarinnar, fimmtán stigum meira en grannarnir og Englandsmeistararnir í Manchester City. City á leik til góða gegn Chelsea á morgun.Arsenal vann sinn þriðja leik í röð í ensku úrvalsdeildinni, nú gegn Aston Villa, 2-1. Santi Cazorla skoraði bæði mörk Arsenal í leiknum. Fyrra markið kom á sjöttu mínútu með laglegu skoti en það síðara af stuttu færi eftir fyrirgjöf nýliðans Nacho Monreal. Varnarleikur Arsenal hefur þó ekki verið upp á sitt besta að undanförnu og það sýndi sig aftur í kvöld er Andreas Weimann fékk tíma og pláss til að skora með skoti rétt utan vítateigs. Hann jafnaði þá metin fyrir gestina en Cazorla tryggði Arsenal sigurinn á 85. mínútu. Arsenal er í fimmta sæti deildarinnar sem fyrr en nú með 47 stig. Liðið er einu stigi á eftir Tottenham og tveimur á eftir Chelsea. Bæði eiga þó leik til góða. Grant Holt tryggði Norwich sigur á Everton, 2-1, með marki í uppbótartíma. Everton komst yfir með marki Leon Osman á 39. mínútu en Norwich skoraði tvívegis á síðustu tíu mínútum leiksins. Fyrra mark Norwich skoraði Kei Kamara en hann kemur frá Sierra Leone og er fyrstur landa sinna til að skora í ensku úrvalsdeildinni. Everton er í sjötta sæti deildarinnar og nú búið að missa Arsenal fimm stigum frá sér.Wigan vann öruggan 3-0 sigur á Reading en með sigrinum komst Wigan úr fallsæti. Pavel Pogrebnyak, leikmaður Reading, fékk að líta rauða spjaldið fyrir ljóta tæklingu. Þá vann West Brom 2-1 sigur á Sunderland. Romelu Lukaku, sem er lánsmaður frá Chelsea, skoraði bæði mörk West Brom í leiknum. West Brom er í sjöunda sætinu með 40 stig.
Enski boltinn Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira