Clarke: Liverpool að spila besta fótboltann í deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2013 12:30 Steven Gerrard og Jordan Henderson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Steve Clarke, stjóri West Brom og fyrrum aðstoðarmaður Kenny Dalglish hjá Liverpool, telur að Liverpool sé farið að njóta ávaxta leikmannakaupa Dalglish. Lærisveinar Clarke heimsækja Anfield í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Jordan Henderson, Stewart Downing og Jose Enrique verða væntanlega allir í byrjunarliði Liverpool í leiknum í kvöld. „Það kemur mér ekki mikið á óvart að ungu leikmennirnir sem Kenny keypti séu farnir að blómstra. Það tekur alltaf tíma fyrir leikmenn að koma sér fyrir hjá stóru félagi eins og Liverpool," sagði Steve Clarke við BBC. „Luis Suarez er virkilega kominn á flug og á þessum tímapunkti þá er Liverpool líklega að spila besta fótboltann í ensku úrvalsdeildinni," sagði Steve Clarke. Steve Clarke mætir í kvöld á Anfield í fyrsta sinn síðan að hann og Kenny Dalglish voru látnir fara fyrir 18 mánuðum síðan og Brendan Rodgers tók við. Liverpool hefur gert 2-2 jafntefli við Arsenal og Manchester City í síðustu leikjum sínum en var með forystu í seinni hálfleik í þeim báðum. „Brendan er með annan leikstíl en Kenny. Liverpool hefur samt alltaf reynt að spila góðan fótbolta. Það tók sinn tíma fyrir hugmyndir Brendan að komast til skila. Það sést að liðið er farið að ná betur saman og farið að spila þann fótbolta sem Brendan vill að liðið spili," sagði Clarke.
Enski boltinn Mest lesið Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Sjá meira