Læt verkin tala í stað þess að rífa kjaft í fjölmiðlum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 17. ágúst 2013 08:00 báðir fætur á jörðinni Gylfi Þór hefur ávallt vakið athygli fyrir hæverska framkomu og kurteisi. Hann lætur verkin tala. Mynd/Arnþór
Gylfi Þór Sigurðsson sló í gegn í ensku úrvalsdeildinni hjá Swansea eftir áramót í fyrra. Hann skoraði sjö mörk í átján leikjum og lék á als oddi. Hann var valinn besti leikmaður deildarinnar í marsmánuði og var í kjölfarið orðaður við flest stórlið deildarinnar. Úr varð að eitt stærsta félag landsins, Tottenham Hotspur, keypti Gylfa á 1,6 milljarða króna. Það er ætlast til mikils af leikmönnum sem keyptir eru á slíkan pening. Tímabilið hjá Spurs í fyrra gekk upp og ofan en Gylfa óx ásmegin eftir því sem leið á tímabilið. Þegar upp var staðið spilaði hann 32 leiki fyrir félagið og skoraði þrjú mörk. „Það tók mig heldur lengri tíma að komast í gang en ég var að vonast til. Eftir jól fóru hlutirnir að smella saman. Ég fór aldrei að örvænta neitt og leið alltaf vel þó svo að það væri ekki allt að ganga upp. Ég var orðinn svolítið pirraður stundum þegar boltinn fór í stöngina og út. Svo þurfti bara eitt ljótt mark gegn West Ham til þess að snúa gæfunni við,“ sagði Gylfi Þór og brosti sínu vinalega brosi þar sem hann sat á spjalli við blaðamann á Nordica-hótelinu. Hann var þar með landsliðinu í aðdraganda leiksins við Færeyjar sem hann gat að lokum ekki spilað vegna meiðsla. Meiðslin eru þó ekki alvarleg.Vill fá stærra hlutverk Gylfi hefur spilað mest allra leikmanna Tottenham á undirbúningstímabilinu. Spilað 90 mínútur í öllum leikjum nema einum. Það gefur klárlega til kynna að stjóri liðsins, Andre Villas-Boas, ætli Gylfa mun stærra hlutverk hjá liðinu í vetur en á síðustu leiktíð. „Það er mjög jákvætt að hafa fengið þetta tækifæri og vonandi verður áframhald á þessu. Það hefur ekkert breyst þannig. Leikmenn hafa komið og farið eins og gengur. Ég veit betur núna út á hvað þetta gengur og líður þar af leiðandi betur. Ég vil að sjálfsögðu fá stærra hlutverk. Ég vissi að það tæki tíma að stimpla sig inn. Nú er það undir mér komið að halda mér í liðinu.“ Gylfi segir að markmið sitt sé að festa sig í sessi hjá liðinu í vetur. „Það væri líka gaman að skora eitthvað af mörkum. Svo er yfirlýst markmið hjá liðinu að tryggja sig inn í Meistaradeildina. Svo viljum við eðlilega fara langt í Evrópukeppninni og bikarnum líka. Það væri ekki leiðinlegt að fá einhverja bikara á White Hart Lane í vetur. Það er alltaf pressa hjá þessu félagi og hún er ekkert meiri núna en venjulega. Það er mikið hungur hjá leikmönnum að komast í Meistaradeildina og það mun drífa okkur áfram.“Hausinn þarf að vera í lagi Það hafa orðið nokkrar breytingar á Tottenham-liðinu í sumar og meðal annars er Bandaríkjamaðurinn Clint Dempsey horfinn á braut en hann keppti við Gylfa um sæti í liðinu. Margir Íslendingar voru fúlir yfir því hversu lítið Gylfi fékk að taka af horn- og aukaspyrnum í fyrra enda frábær spyrnumaður. Þar eru að verða breytingar. „Ég fékk aðeins að spreyta mig en Bale var að skora úr aukaspyrnum þannig að erfitt var að komast þar að. Í síðustu leikjum hef ég nánast verið að taka öll horn og allar aukaspyrnur. Það er mjög jákvætt. Það bendir margt til þess að ég sé að fá stærri rullu. Stjórinn þekkir mig betur núna og treystir mér kannski betur til þess að taka meiri ábyrgð.“ Líf atvinnumannsins getur verið skrautlegt. Það getur gengið vel einn mánuðinn og þann næsta eru menn dottnir úr liðinu og komnir í erfiða stöðu. Hvernig glímir Gylfi við þessi vandamál? „Það er lykilatriði að halda sér rólegum. Ef maður æfir sig nógu mikið þá kemur þetta oft til baka. Það er nauðsynlegt að hafa hausinn í lagi og vera jákvæður. Maður fær alltaf tækifæri aftur og því um að gera að setja sér markmið og láta ekkert stoppa sig.“ Hafnfirðingurinn segir að sér hafi liðið vel hjá Spurs og í Lundúnum en hverjir eru hans helstu félagar í liðinu? „Ég hef verið mikið með Tom Huddlestone og Jake Livermore. Við förum svolítið í tennis og ég er að vinna þá þar. Svo spilum við líka svolítið golf og ég hef verið að hafa betur þar líka. Er aðeins að kenna þeim,“ sagði Gylfi og hló. Hann þarf reyndar að finna sér nýja vini því þeir eru báðir farnir frá félaginu. Gylfi er afar liðtækur golfari og er með sjö í forgjöf. Bróðir hans, Ólafur Már Sigurðsson, er einn besti kylfingur landsins og vinsæll golfkennari þess utan. „Golf er eitt það skemmtilegasta sem ég geri en ég er ekki enn farinn að vinna Óla. Hann er samt duglegur að kenna mér þegar við spilum. Hann hefur náð mér niður í sjö í forgjöf og veit því greinilega hvað hann er að gera.“ Gylfi segir að sér finnist skemmtilegast að heimsækja heimavelli Man. Utd, Liverpool og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. Hann man líka vel hvar var leiðinlegast að spila á Englandi.Gylfi í leik með Spurs í sumar.Fær alltaf fiðring í magann „Þegar ég var í láni hjá Crewe á sínum tíma lék ég gegn Accrington Stanley. Það var ekki skemmtilegt. Það var snjór, rigning og þúsund manns í stúkunni,“ sagði Gylfi en fær hann enn fiðring fyrir alla leiki? „Maður venst þessu en þegar maður labbar út á völlinn og 50 þúsund manns eru að öskra fær maður alltaf fiðring í magann. Þetta er auðvitað það skemmtilegasta sem maður gerir. Ég hef beðið eftir þessu síðan ég var lítill og það er alltaf jafn gaman að labba út á völlinn.“Ekki týpan fyrir Twitter Gylfi er þekktur fyrir að vera rólegur og spar á yfirlýsingarnar. Hann er líka einn af þeim sem forðast samfélagsmiðlana og er til að mynda ekki á Twitter eins og svo margir félagar hans. „Ég er ekki þessi týpa sem hefur áhuga á Twitter. Ég hef bara áhuga á því að spila fótbolta og fara svo heim að slappa af. Þetta heillar mig ekki. Ég nota helst tölvuna til þess að horfa á kvikmyndir.“ Þessi 23 ára strákur er mikil og góð fyrirmynd. Hann hefur alla tíð lagt afar hart að sér og er að uppskera eftir því. Hann segist líka ekki vera týpan sem sést niðri í bæ klukkan fimm, enda drekkur hann ekki og hann hefur heldur aldrei notað tóbak. Tekur hann hlutverk sitt sem fyrirmynd alvarlega? „Ég tek það nokkuð alvarlega. Ég hugsa ekki mikið um hvernig fólk hugsar um mig en ég hugsa meira um hvernig ég geti gert hlutina rétt. Ég hugsa mjög vel um sjálfan mig og sleppi áfengi og tóbaki. Það stendur ekkert til að breyta því. Ég hef síðan reynt að láta verkin tala í stað þess að rífa kjaft í fjölmiðlum.“Höfum meiri trú á landsliðinu Gylfi hefur verið í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu sem á enn möguleika á því að komast á HM næsta sumar. Það þarf þó margt að ganga upp til þess að sá draumur verði að veruleika. Gylfi hefur aðallega spilað á kantinum en viðurkennir að sér líði betur í annarri stöðu. „Mér líður best í holunni fyrir aftan framherjana en við spilum 4-4-2 og Lars gefur mér svolítið frjálst hlutverk þannig að ég fæ að koma inn á miðjuna. Ég er mjög sáttur við það og finn mig vel. Ég hef samt alltaf sagt að svo lengi sem ég sé inn á vellinum þá sé ég sáttur.“ Gengi íslenska landsliðsins hefur verið allt annað og betra síðan Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson tóku við liðinu. Það virðist líka vera annar og betri andi í herbúðum liðsins. Hver er helsti styrkleiki þjálfaranna? „Þeir eru mjög góðir saman. Það er góður agi og skipulag hjá okkur. Það er farið vel yfir alla hluti. Undirbúningur er eins og best verður á kosið. Það hefur tekist að skapa góða stemningu í kringum liðið og Heimir á mikinn þátt í því. Helsti munurinn á stemningunni í hópnum er helst sá að það er meiri trú á að við getum náð árangri en áður.“ Liðsfélagi Gylfa, Wales-maðurinn Gareth Bale, hefur verið mikið í fjölmiðlum í sumar enda vill spænska stórliðið Real Madrid kaupa hann. Ekki er enn loku fyrir það skotið að Bale fari til Spánar en ef af verður þarf Real að borga upphæð sem aldrei áður hefur verið greidd fyrir leikmann.Engir stjörnustælar í Bale „Bale er frábær leikmaður. Hann er ótrúlega snöggur og það er örugglega ekki gaman að vera bakvörður og spila gegn honum. Þetta er mjög fínn strákur. Jarðbundinn og engir stjörnustælar í honum. Það er gaman að vera með honum í liði en pirrandi að vera ekki jafn fljótur og hann,“ sagði Gylfi Þór léttur og glotti við tönn en óvissa er um frámtíð félaga hans, Gareth Bale, sem er sterklega orðaður við Real Madrid. „Ég vona að hann verði áfram hjá okkur en það getur verið erfitt að halda honum þegar það er svona mikill áhugi á honum. Þessi fjölmiðlasirkus hefur ekki haft nein áhrif á hópinn og við erum voðalega lítið að fylgjast með því sem er að gerast. Það yrði söknuður að honum, enda er hann vinsæll hjá okkur sem og hjá stuðningsmönnunum. Ef hann fer þá koma samt örugglega einhverjir í staðinn. Það verður bara að koma í ljós hvað gerist.“
Enski boltinn Mest lesið Þrír létust við fall úr stúku á fótboltaleik Fótbolti Ljósmyndari tekinn með valdi frá brúðkaupsgestum Fótbolti Instagram-drottningin mætir Íslandi á EM Fótbolti Fyrirmyndarnemanda og fótboltastjörnu vísað úr landi Fótbolti Uppgjörið: FH - Vestri 2-0 | Upp um fjögur eftir magnað mark og skalla Íslenski boltinn Félagarnir í sjokki: Sjáðu stórkostlegt mark Sigurðar Bjarts Íslenski boltinn Leik lokið: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu Íslenski boltinn Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Handbolti Leik lokið: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga Íslenski boltinn Fékk símtal á fimmtudaginn og komst að samkomulagi sólarhring síðar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Sjá meira