Enski boltinn

Eina stöðin í Evrópu með alla leiki

Hjörvar spáir spennandi vetri í enska boltanum.
Hjörvar spáir spennandi vetri í enska boltanum. fréttablaðið/arnþór
„Þetta verður algjör veisla. Við erum að fara að sýna alla 380 leikina í ensku úrvalsdeildinni. Við erum eina stöðin í Evrópu sem gerir það og við erum mjög stoltir af því,“ segir Hjörvar Hafliðason, dagskrárstjóri Stöðvar 2 Sport, en hans menn eru klárir í bátana fyrir enska boltann sem hefst í dag.

Messan verður á sínum stað en þó ekki lengur á sunnudögum.

„Það verður Mánudagsmessa hjá okkur núna núna. Við teljum að mánudagskvöld séu betri sjónvarpskvöld og höfum því fært okkur um set,“ segir Hjörvar.

Hann verður áfram í þættinum með Guðmundi Benediktssyni. Feðgarnir Guðjón Þórðarson og Bjarni Guðjónsson verða einnig reglulegir gestir í þættinum.

Í vetur verður öllum leikjum lýst á íslensku en undanfarin ár hafa leikir á hliðarrásum Stöðvar 2 Sport verið sendir út með ensku tali. „Það er mikil tilhlökkun hjá okkur að fara af stað en þessi vetur verður veisla.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×