Tíu menn Arsenal töpuðu á heimavelli á móti Villa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2013 13:30 Mynd/AFP
Tíu leikmenn Arsenal urðu að sætta sig við 1-3 tap á heimavelli á móti Aston Villa í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Anthony Taylor, dómari leiksins á Emirates Stadium, dæmdi tvö víti á Arsenal í leiknum og rak Frakkann Laurent Koscielny af velli á 67. mínútu. Belginn Christian Benteke skoraði tvö fyrstu mörk Aston Villa í leiknum en það dugði ekki Arsenal að fá draumabyrjun og komast yfir eftir aðeins sex mínútna leik. Bæði mörk Christian Benteke komu eftir vítaspyrnur sem Gabriel Agbonlahor fiskaði en fyrra markið kom þegar Benteke fylgdi eftir víti sínu sem Wojciech Szczesny hafði varið. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur ekki náð að styrkja lið Arsenal í sumar og fær eflaust að lesa mikið um það í ensku fjölmiðlunum á morgun eftir þessa skelfilegu byrjun liðsins. Olivier Giroud kom reyndar Arsenal yfir strax á 6. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir frábæran undirbúning Alex Oxlade-Chamberlain. Draumabyrjun en hún stóð ekki lengi. Gabriel Agbonlahor gerði vel í að fiska víti á Wojciech Szczesny á 22. mínútu. Wojciech Szczesny varði víti Christian Benteke en belgíski framherjinn náði að skalla frákastið í markið og jafna leikinn. Agbonlahor fiskaði annað víti á 61. mínútu leiksins og nú á Frakkann Laurent Koscielny. Christian Benteke steig aftur á punktinn og nú skoraði hann af miklu öryggi. Aðeins sex mínútum síðar fékk Koscielny síðan sitt annað gult fyrir litlar sakir og þar með rautt. Arsenal var því manni færri síðustu 23 mínútur leiksins. Bakvörðurinn Antonio Luna innsiglaði síðan sigurinn á 85. mínútu eftir að Aston Villa náði skyndisókn í kjölfar hornspyrnu Arsenal.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Golf Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Fleiri fréttir Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Sjá meira