Enski boltinn

Bardsley baðst afsökunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bardsley var á sínum tíma á mála hjá Manchester United líkt og fleiri varnarmenn Sunderland.
Bardsley var á sínum tíma á mála hjá Manchester United líkt og fleiri varnarmenn Sunderland. Nordicphotos/Getty
Phil Bardsley, varnarmaður Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, hefur beðist afsökunar á framkomu sinni á samfélagsmiðlinum Instagram.

Skoski bakvörðurinn missti af tapleik Sunderland gegn Fulham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar vegna meiðsla. Hann fylgdist þó grannt með gangi mála og að loknum tapleiknum birti hann eftirfarandi skilaboð á Instagram:

„Frábær byrjun á tímabilinu. Hahahhahaha hahahhaha!!!“

Áður hafði Bardsley reitt knattspyrnustjórann Paolo di Canio til reiði eftir að hafa sótt spilavíti síðla kvölds.

„Ég vil biðja félagið og stuðningsmenn þess afsökunar á ummælum mínum á samfélagsmiðli,“ segir í yfirlýsingu Bardsley sem birt hefur verið á heimasíðu félagins.

Skotinn viðurkennir að hafa farið yfir strikið og sætti sig við refsingu félagsins sem meinaði honum að æfa með aðalliðinu. Hann má nú æfa með liðinu á nýjan leik.

Skilaboð Phil Bardsley, með notendanafnið bardoman26, á Instagram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×