Liðsfélagar Balotelli hjá City búnir að fá nóg af honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2012 13:00 Mario Balotelli var ekki sáttur með að fá ekki að taka aukaspyrnu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það er aldrei lognmolla í kringum Mario Balotelli og nú heyrast sögur úr herbúðum Manchester City að liðsfélagar hans í City séu búnir að fá nóg af stælunum í framherjanum. Balotelli fór að rífast við félaga sína í miðjum leik um helgina og lenti síðan í hár saman við einn af reynsluboltum liðsins eftir leik. Það fór ekki framhjá neinum í 3-3 jafntefli Manchester City og Sunderland um helgina þegar Mario Balotelli fór að rífast við nokkra leikmenn City af því að hann vildi frá að taka aukaspyrnu rétt utan teigs. Vincent Kompany, fyrirliði City, leiddi Balotelli á endanum í burtu og það var síðan Aleksandar Kolarov sem tók spyrnuna. Daily Telegraph. hefur heimildir fyrir því að Mario Balotelli hafi síðan rifist heiftarlega við Yaya Toure eftir leik sem endaði með því að Kolo Toure þurfti að skilja þá í sundur. Balotelli og Yaya Toure lentu einnig í hár saman í tapleiknum á móti Swansea á dögunum. Mario Balotelli hefur einnig lent upp á kant við Micah Richards og Jerome Boateng á æfingum City og þetta hegðunarvandamál hans er greinilega ekkert að lagast. Balotelli skoraði tvö mörk um helgina en það var samt ekki nóg til að sleppa við gagnrýni frá bæði liðsfélögum hans og stjóra. „Mario er farinn að fara í taugarnar á mörgum leikmönnum City. Hann getur verið frábær en það er eins og hann telji sig vera hafinn yfir allar reglur. Það er ekki gott fyrir liðsfélaga hans þegar hann kemst í þannig skap að allt þurfi að snúast í kringum hann sjálfan," sagði heimildar maður The Sun úr herbúðum Manchester City. Margt bendir nú til þess að Roberto Mancini, stjóri Manchester City, sé tilbúinn að selja Balotelli í sumar enda gaf það opinberlega út að hann treysti Balotelli ekki lengur.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti Fleiri fréttir Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti