United með fimm stiga forystu á toppnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. apríl 2012 14:29 Nordic Photos / Getty Images
Það tók Manchester United rúmar 80 mínútur að brjóta ísinn gegn Blackburn í kvöld en liðið vann þó að lokum 2-0 sigur með mörkum Antonio Valencia og Ashley Young. Þar með hefur United tekið fimm stiga forystu á toppi deildarinnar og stórt skref í átt að sínum 20. Englandsmeistaratitli frá upphafi. Blackburn er hins vegar dottið niður í fallsæti á nýjan leik en liðið er með 28 stig í átjánda sæti deildarinnar. Liðið er með jafn mörg stig og QPR en lakara markahlutfall. Javier Hernandez átti skot í stöng snemma í leiknum en Blackburn fékk líka góð færi í fyrri hálfleik en David De Gea, markvörður liðsins, varði í tvígang glæsilega og sá til þess að staðan var markalaus í hálfleik. Síðari hálfleikur var svo að mestu eign gestanna frá Manchester og náði liðið sanngjarnri forystu þegar að Valencia skoraði með föstu skoti úr þröngu færi á vítateigslínunni. Young innsiglaði svo sigurinn með hnitmiðuðu skoti rétt utan vítateigs eftir stoðsendingu Valencia. Það reyndi þó á þolinmæði United-manna í kvöld en eins og svo oft áður reyndust leikmenn liðsins með nægilega sterkar taugar til að klára verkefni sitt, þó mörkin hafi komið seint. Helsti keppinautur United um titilinn, Manchester City, hefur misstigið sig að undanförnu og því fátt sem bendir til annars en að lærisveinar Alex Ferguson standi uppi sem sigurvegarar í vor, í enn eitt skiptið. Þó er nóg af stigum eftir í pottinum en sjö umferðir eru eftir af tímabilinu.
Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Sjá meira